40% afsl  SKAFTPOTTUR, Rauður, ljós að innan, 1.2 L

40% afsl SKAFTPOTTUR, Rauður, ljós að innan, 1.2 L

Almennt verð 5.950 kr 3.570 kr Tilboð

Lítill skaftpottur, ljós að innan

Léttur ál pottur með þríbrenndri keramikhúð að innan. Keramik húð er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.

Pottarnir eru gefnir upp fyrir alla hitabrunna. Það festist undir þeim segull. Athugið samt að þegar kemur að span hellum, má potturinn ekki vera minni heldur en hellan. 

Botninn er með góða hitaleiðni sem býður upp á að nota lægri hitastillingar. 

Pottarnir eru steyptir, ekki pressaðir, þeir hitna hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.

Meðferð:

  • Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
  • Smyrja þá reglulega með jurtaolíu til að verja keramiklagið.
  • Óþarfi að nota háan hita, pottarnir leiða til orkusparnaðar.
  • Alls ekki ofhita tóma potta og pönnur.
  • Mega fara í uppþvottavél. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
  • Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
  • Ekki setja heitan pott undir kalt vatn til að kæla eða hreinsa.