
40% afsl SKAFTPOTTUR, Kopar, svartur að innan 1,2 L
Almennt verð
5.950 kr
3.570 kr
Tilboð
Skaftpottur, 1,2 L
Léttur ál pottur með þríbrenndri steinefna (marmara) húð að innan. Marmara húðin er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.
Pottarnir eru gefnir upp fyrir alla hitabrunna, það festist undir þeim segull.
Botninn er með góða hitaleiðni sem býður upp á að nota lægri hitastillingar. Hitaleiðnin er slík að það þarf að varast að ofhita þá ekki tóma potta.
Pottarnir eru steyptir, ekki pressaðir, þeir hitna hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.
Ekkert blý, cadmium né nikkel.
Engin flúorefni: PFOA, PTFE
Meðferð:
- Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
- Smyrja þá reglulega með jurtaolíu til að verja steinefna lagið.
- Óþarfi að nota háan hita, pottarnir leiða til orkusparnaðar.
- Alls ekki ofhita tóma potta.
- Mega fara í uppþvottavél, en ekki lokið. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
- Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
- Ekki setja heitan pott undir kalt vatn til að kæla hann eða hreinsa.
- Mega fara í ofn, lokin þola 180 C, ekki borin ábyrgð á lokum í ofni.
- Gæti verið gott að herða á skrúfunni í lokinu.