1. KOPAR Pottasett (smellt skaft), vantar 2.5L pottinn miðað við mynd

1. KOPAR Pottasett (smellt skaft), vantar 2.5L pottinn miðað við mynd

Almennt verð 54.900 kr 46.900 kr Tilboð

POTTASETT, smellt skaft, svart að innan. Vantar 2.5L pottinn miðað við mynd, sjá kross á mynd.

Getur verið að farið sé að sjá á kassa.

Léttir ál pottar með þríbrenndri steinefna húð að innan. Steinefna húðin er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.

Pottarnir eru gefnir upp fyrir alla hitabrunna. Það festist undir þeim segull. 

Sköftin eru smellt á þannig að auðvelt er að taka þau af þegar við viljum stinga pönnunum inní ofn eða leggja þær á borð.

Selt í settum, settið samanstendur af 3 pottum með loki (1.2L, 4L og 6L) og 2 pönnum, 24 og 28 cm. Lokin af stærri pottunum passa líka á pönnurnar.  Stóra pannan er skemmtilega djúp - 6,5 cm.

Botninn er með góða hitaleiðni sem býður upp á að nota lægri hitastillingar. Hitaleiðnin er slík að það þarf að varast að ofhita ekki tóma potta og pönnur.

Pottarnir eru steyptir, ekki pressaðir, þeir hitna hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.

Eyrun á pottunum hitna líka.Tvö sett af silikon höldum fylgja.

Pottana má setja inn í ofn. Koma gúllasinu, kjötsúpunni, baunasúpunni, grjónagrautnum o.fl. af stað og stinga svo inn í ofn. Þá þurfum við ekki stanslaust að vera á vaktinni.

Ekkert blý, cadmium né nikkel.

Engin flúorefni: PFOA, PTFE

 

Meðferð:

  • Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
  • Smyrja þá reglulega með jurtaolíu til að verja steinefna lagið.
  • Óþarfi að nota háan hita, pottarnir leiða til orkusparnaðar.
  • Alls ekki ofhita tóma potta og pönnur.
  • Mega fara í uppþvottavél, en ekki lokin. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
  • Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
  • Ekki setja heitar pönnur/pott undir kalt vatn til að kæla þær eða hreinsa.
  • Mega fara í ofn, lokin þola 180 C, ekki borin ábyrgð á lokum í ofni.
  • Gæti verið gott að herða á skrúfunni í lokinu.