
30% afsl. PANNA RIFFLUÐ 28cm
Almennt verð
8.700 kr
Tilboð
RIFFLUÐ PANNA, 28cm – AG28M
Þetta eru léttar ál pönnur með þríbrenndri steinefna (marmara) húð að innan. Marmara húðin er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.
Rifflur setja fallegar rendur á steikina.
Álbotn með stálkjarna tryggir jafnari hitaleiðni, betri hitaleiðni býður uppá að nota lægri hitastillingar og meiri orkusparnað.
Pönnurnar eru steyptar, ekki pressaðar, þær hitna hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.
Án flúorefna (PFOA, PFOS), ekkert nickel, blý né Cd.
Meðferð:
- Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
- Smyrja reglulega með jurtaolíu til að verja marmara lagið.
- Óþarfi að nota háan hita, pönnurnar leiða til orkusparnaðar.
- Alls ekki ofhita tómar pönnur.
- Mega fara í uppþvottavél. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
- Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
- Ekki setja heita pönnu undir kalt vatn til að kæla hana eða hreinsa.