RAUÐ PANNA, 28 cm
RAUÐ PANNA, 28 cm

RAUÐ PANNA, 28 cm

Almennt verð 15.600 kr Tilboð

Litla myndin af settinu gefur sannari mynd af litnum.

Létt panna með þríbrenndri steinefna húð að innan. Steinefna húðin er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.

Pannan er gefin upp fyrir alla hitabrunna. Það festist undir henni segull.

Skemmtilega djúp - 6,5 cm.

Botninn er með góða hitaleiðni sem býður upp á að nota lægri hitastillingar. Hitaleiðnin er slík að það þarf að varast að ofhita ekki pönnuna tóma.

Pannan er steypt, ekki pressuð, hitnar hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.

Ekkert blý, cadmium né nikkel.

Engin flúorefni: PFOA, PTFE

Meðferð:

  • Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
  • Smyrja reglulega með jurtaolíu til að verja steinefna lagið.
  • Óþarfi að nota háan hita, pannan leiðir til orkusparnaðar.
  • Alls ekki ofhita tóma pönnuna.
  • Má fara í uppþvottavél. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
  • Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
  • Ekki setja heita pönnuna undir kalt vatn til að kæla hana eða hreinsa.