20% afsl KOPAR POTTUR 4L
20% afsl KOPAR POTTUR 4L

20% afsl KOPAR POTTUR 4L

Almennt verð 7.900 kr 6.320 kr Tilboð

Léttur 4L ál pottur með þríbrenndri steinefna (marmara) húð að innan. Marmara húðin er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.

Pottarnir eru gefnir upp fyrir alla hitabrunna, það festist undir þeim segull. 

Botninn er með góða hitaleiðni sem býður upp á að nota lægri hitastillingar. Hitaleiðnin er slík að það þarf að varast að ofhita þá ekki tóma potta. 

Pottarnir eru steyptir, ekki pressaðir, þeir hitna hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.

Ekkert blý, cadmium né nikkel.

Engin flúorefni: PFOA, PTFE.

Meðferð:

  • Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
  • Smyrja þá reglulega með jurtaolíu til að verja steinefna lagið.
  • Óþarfi að nota háan hita, pottarnir leiða til orkusparnaðar.
  • Alls ekki ofhita tóma potta.
  • Mega fara í uppþvottavél, en ekki lokið. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
  • Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
  • Ekki setja heitan pott undir kalt vatn til að kæla hann eða hreinsa.
  • Mega fara í ofn, lokin þola 180 C, ekki borin ábyrgð á lokum í ofni.
  • Gæti verið gott að herða á skrúfunni í lokinu.