ELDFAST FAT MEÐ LOKI – Lasagnafat, 32 cm
Keramikhúðað, ferkantað fat með glerloki, vel djúpt – þannig að lasagna ætti ekki að þurfa að flæða yfir barmana.
Keramik húð er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.
Þetta fat er líka hægt að setja á hellu og nota sem pönnu eða til að hita upp í, sjá mynd af botni.
Álbotn með stálkjarna tryggir jafnari hitaleiðni, betri hitaleiðni býður uppá að nota lægri hitastillingar og meiri orkusparnað.
Þægilegt ef steikja þarf fyrir marga að koma fatinu fyrir á lágum hita á eldavélinni og færa jafnóðum af steikarpönnunni yfir í fatið til að halda heitu.
Hnúðurinn á lokinu virkar eins og skál. Þú getur fyllt hann af smjöri eða vatni og látið dropa ofan á t.d. lambahrygginn. Þá þarf ekki að láta safann úr kjötinu rjúka út í ofninn í hvert sinn sem ausa þarf steikina.
Án flúorefna (PFOA, PFOS), blýs, kadmíums og nikkels.
Meðferð:
- Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
- Smyrja þá reglulega með jurtaolíu til að verja keramiklagið.
- Alls ekki ofhita tómt fat.
- Mega fara í uppþvottavél, en ekki lokið. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
- Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
- Ekki setja heitar fatið undir kalt vatn til að kæla eða hreinsa.