
1. KOPAR Pottasett (smellt skaft)
Almennt verð
54.900 kr
Tilboð
POTTASETT, smellt skaft, svart að innan
Getur verið að farið sé að sjá á kassa.
Léttir ál pottar með þríbrenndri steinefna húð að innan. Steinefna húðin er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.
Pottarnir eru gefnir upp fyrir alla hitabrunna. Það festist undir þeim segull.
Sköftin eru smellt á þannig að auðvelt er að taka þau af þegar við viljum stinga pönnunum inní ofn eða leggja þær á borð.
Selt í settum, settið samanstendur af 4 pottum með loki (1.2L, 2.5L, 4L og 6L) og 2 pönnum, 24 og 28 cm. Lokin af stærri pottunum passa líka á pönnurnar. Stóra pannan er skemmtilega djúp - 6,5 cm.
Botninn er með góða hitaleiðni sem býður upp á að nota lægri hitastillingar. Hitaleiðnin er slík að það þarf að varast að ofhita ekki tóma potta og pönnur.
Pottarnir eru steyptir, ekki pressaðir, þeir hitna hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.
Eyrun á pottunum hitna líka.Tvö sett af silikon höldum fylgja.
Pottana má setja inn í ofn. Koma gúllasinu, kjötsúpunni, baunasúpunni, grjónagrautnum o.fl. af stað og stinga svo inn í ofn. Þá þurfum við ekki stanslaust að vera á vaktinni.
Ekkert blý, cadmium né nikkel.
Engin flúorefni: PFOA, PTFE
Meðferð:
- Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
- Smyrja þá reglulega með jurtaolíu til að verja steinefna lagið.
- Óþarfi að nota háan hita, pottarnir leiða til orkusparnaðar.
- Alls ekki ofhita tóma potta og pönnur.
- Mega fara í uppþvottavél, en ekki lokin. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
- Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
- Ekki setja heitar pönnur/potta undir kalt vatn til að kæla þær eða hreinsa.
- Mega fara í ofn, lokin þola 180 C, ekki borin ábyrgð á lokum í ofni.
- Gæti verið gott að herða á skrúfunni í lokinu.