POTTUR 6L, Kremlitur, útlitsgallaður.
Lítill punktur sem vantar glerund á, potturinn er heill að öðru leiti.

POTTUR 6L, Kremlitur, útlitsgallaður.

Almennt verð 8.900 kr 7.900 kr Tilboð

Lítið útlitsgallaður, heill að innan.

Léttur ál pottur með þríbrenndri keramikhúð að innan. Keramik húð er viðloðunar frí og er að koma í stað teflon húðar sem hefur verið notuð hingað til. Nú þurfum við hvorki að sætta okkur við að aukaefni leki né flagni út í matinn okkar.

Pottarnir eru gefnir upp fyrir alla hitabrunna. Það festist undir þeim segull.

Botninn er með góða hitaleiðni sem býður upp á að nota lægri hitastillingar. Hitaleiðnin er slík að það þarf að varast að ofhita ekki tóma potta.

Pottarnir eru steyptir, ekki pressaðir, þeir hitna hratt og mikið, alveg upp á brún, þannig að við erum að elda upp með hliðunum líka, sem styttir eldunartímann.

Eyrun á pottunum hitna líka.Silikon höldur fylgja, þarf ekki að taka af þegar pottarnir eru þvegnir.

Pottana má setja inn í ofn. Koma gúllasinu, kjötsúpunni, baunasúpunni, grjónagrautnum o.fl. af stað og stinga svo inn í ofn. Þá þurfum við ekki stanslaust að vera á vaktinni.

 

Meðferð:

  • Þvo úr léttu sápuvatni fyrir fyrstu notkun og strjúka að innan með jurtaolíu.
  • Smyrja þá reglulega með jurtaolíu til að verja keramiklagið.
  • Óþarfi að nota háan hita, pottarnir leiða til orkusparnaðar.
  • Alls ekki ofhita tóma potta og pönnur.
  • Mega fara í uppþvottavél, en ekki lokin. Uppþvottavéladuft styttir líftíma viðloðunarfría lagsins.
  • Ekki nota málmáhöld eða önnur beitt áhöld
  • Ekki setja heitar pönnur/pott undir kalt vatn til að kæla þær eða hreinsa.
  • Mega fara í ofn, lokin þola 180 C, ekki borin ábyrgð á lokum í ofni.